Gegnsæi fjármála, sem ríkisstjórnin lofaði, er ekki til. Óhæfir bankastjórar haga sér eins og þeim þóknast. Fela sig bara bak við bankaleynd, ef fýkur í önnur skjól. Við þurfum tvenns konar gegnsæi. Annars vegar til að sjá, hvort allir sitji við sama borð við afskriftir skulda, fyrirtæki og fjölskyldur. Hins vegar þurfum við að fá nánar útskýrt, hvers vegna bankar telja einkum áreiðanlega þá menn, sem hafa sett þjóðina á hausinn. Ljósi punkturinn er blaðamannafundur Jóhönnu og Steingríms í dag. Þau sögðu, að afskriftir hjá stórfyrirtækjum kalli á útboð til nýrra eigenda. Kannski heyrir Finnur illa.
