Gegnrotið Ísrael

Punktar

Ísrael er gegnrotið samfélag. Allt frá hæstarétti niður í morðingja hersins, sem státa á tístinu af fjölda barna, sem þeir hafa drepið. Niður í þingmanninn, sem heimtar, að allar mæður í Palestínu séu drepnar. Almenn geðveiki er orðin hornsteinn samfélagsins í Ísrael. Málið snýst ekkert um gyðinga úti um heim, þeir styðja þetta fáir og aðrir hafna því. Málið snýst um Ísrael sem ríki, sem samfélag, sem einstaklinga. Allt, sem heitir Ísrael, er orðið eldspúandi skrímsli á framfæri mesta terrorista heims, Bandaríkjanna. Þau bera óskipta ábyrgð á að hafa ræktað skrímsli og gert það að andstyggð allra góðra manna.