Fyrir Flokkinn sinn

Punktar

“Hvað get ég gert fyrir Sjálfstæðisflokkinn”, spyr einn sextán frambjóðenda í prófkjörsblaði Flokksins í Kópavogi. Já, hvað getur þú gert fyrir Flokkinn og hvað getur þjóðin gert fyrir Flokkinn sinn? Ég hef dónalegar hugmyndir um það, en læt þær kyrrar liggja í bili. En hvað getur Flokkurinn gert fyrir þjóðina, það er allt önnur Ella. Hann getur vísað fjárglæframönnum sínum af þingi og forðast fleiri glæframenni. Hann getur gert upp fortíðina og leitað aftur til uppruna síns. Getur hætt upphlaupum og málþófi um tæknileg atriði á þingi. En til of mikils er mælzt, að hann taki þjóðina fram yfir Flokkinn.