Ríkið hefur tekið um hálfa milljón króna í tolla og söluskatt af hverju húsi, sem flutt hefur verið inn á vegum Viðlagasjóðs. Þannig hagnast ríkið á hörmungum Eyjamanna og gjafmildi nágrannaþjóðanna á Norðurlöndum. Ríkisstjórnin hefur vísað frá sér hugmyndum um, að fjárfúlgur þessar renni beint í Viðlagasjóð, sem er illa staddur um þessar mundir. Þessar óvæntu tekjur, sem ekki var gert ráð fyrir á fjárlögum ríkisins, eiga að renna í óseðjandi ríkishítina.
Ríkið hefur fleiri öngla í sjó á þessum ógeðfelldu miðum. Það hyggst hagnast um 400 milljónir króna á verðhækkun olíu og bensíns Ríkisstjórnin hefur vísað frá sér hugmyndum um, að skattprósentan af þessum vörum verði lækkuð, svo að krónutalan haldist óbreytt frá því, sem gert er ráð fyrir á fjárlögum. Hún hefur líka vísað frá sér hugmyndum um, að þessar óvæntu tekjur verði notaðar til að greiða niður olíu til húsahitunar. Ennfremur hefur hún vísað frá sér hugmyndum um, að þessar 400 milljónir verði notaðar í þágu bílaeigenda með því að leggja þær í Vegasjóð og hindra þar með yfirvofandi gjaldþrot sjóðsins.
Ríkisstjórnin hyggst þannig græða á þeim áföllum, sem þjóðin hefur orðið fyrir að undanförnu, bæði eldgosinu í Heimaey og verðhækkuninni á olíu og bensíni.
Þar á ofan notar hún hvert tækifæri til að öngla fjármuni, sem henni ber ekki samkvæmt fjárlögum. Hún hyggst græða 300 milljónir á því að breyta tollum í söluskatt. Hún tapar á tollalækkuninni um 400 milljónum króna umfram fjárlög og hyggst samkvæmt tollafrumvarpi sínu vinna þetta upp með 700 milljón króna hagnaði af hækkun söluskatts um 1 prósentustig.
Hún hyggst hagnast um hvorki meira né minna en milljarð á afskiptum sínum af kjarasamningunum, sem nú standa yfir. Hún hefur boðið upp á 2.500 milljón króna lækkun tekjuskatts og hyggst vinna það upp með 3.500 milljón króna hagnaði af hækkun söluskatts um 5 prósentustig.
Öll þessi óhugnanlega peningagræðgi er til viðbótar við rosalegustu fjárlög, sem afgreidd hafa verið í sögu Íslands, er nema hvorki meira né minna en um það bil 30% af öllum þjóðartekjunum. Með þessum fjárlögum ætlar ríkisstjórnin áfram að hafa forustu í verðbólgukapphlaupinu
Samkvæmt skýrslu hagrannsóknadeildar er þetta 35% hækkun milli ára. Ef aðrir aðilar þjóð félagsins fylgja fast á eftir fordæmi ríkisstjórnarinnar, verður verðbólga þessa árs um og yfir 30%, enn meiri en metárið í fyrra.
Og stefna ríkisstjórnarinnar á síðustu vikum bendir til þess, að verðbólga fjárlaganna nægi henni ekki. Hún er ákveðin í að hagnast þar á ofan á eldgosinu í Heimaey og verðhækkun olíu og bensíns og belgja út ríkisreksturinn um þann hagnað. Hún þykist gera þjóðinni til góða með lækkun tolla og tekjuskatts, en ætlar sér að ná þeim tekjumissi ríflega til baka með hækkun söluskatts og hyggst belgja út ríkisreksturinn um þann hagnað.
Fjárgræðgi ríkisstjórnarinnar er fyrir löngu orðin alræmd, en nú tekur svo sannarlega steininn úr.
Jónas Kristjánsson
Vísir
