Hefði kosið, að Jóhanna Sigurðardóttir talaði við blaðamenn úti í Bruxelles. Hún hefði náð þar hundrað manns í einu. Hefði sagt þar, að Ísland hafi samið um IceSave með hnífinn á barkanum. Þar séu ósanngjörn atriði. Vextir séu of háir. Ósanngjarnt sé að gera umframgreiðslum Hollands og Bretlands jafnhátt undir höfði og umsömdum lágmarksgreiðslum. Ófært sé að taka efnahagsaðstoð við Ísland í gíslingu Bretlands og Hollands. Þetta átti hún að segja öllum blaðamönnum hjá Evrópusambandinu, en gerði ekki. Það er brottrekstrarsök. Hins vegar finnst mér í lagi, að forsætis geti tekið vikufrí frá störfum.
