Frí frá jeppa og laxveiðum

Punktar

Alltaf er fyndið, þegar menn gefa sér frí frá laxveiðum til að væla, hversu bágt þeir eiga. Geta ekki borgað af fína húsinu sínu, sem þeir byggðu upp á fjörutíu milljónir í skuld. Það er orðið ofursetið skuldum. Ætli Bubbi hafi farið á jeppanum úr laxveiðinni? Tryggvi Þór Herbertsson sagði í sjónvarpinu um daginn, að þjóðin yrði að hugsa um Bubbana sína. Þessa, sem stungu sér á bólakaf í neyzlukapphlaup. Hugmynd Tryggva Þórs og allra Framsóknarmanna er, að afastrákarnir mínir eigi fyrir rest að borga allt þetta Bubba-rugl. Af hverju fá Íslands æðibunumenn ekki að fara á hausinn eins og í gamla daga?