Fréttablað Sjálfstæðisflokksins

Punktar

Margir gera grín að forsíðufyrirsögn Fréttablaðsins í dag. Hanna Birna var aldeilis ekki vinsæl í skoðanakönnuninni. Hún fær 15-20% af úrtakinu. Meira var það nú ekki, aðeins skárra en hjá Degi B. Eggertssyni. Ekkert til að hrópa húrra fyrir. Rétta fréttin var fylgi Bezta flokksins, sem var af stærð Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Frétt númer tvö er, að fáir vildu svara. En Fréttablaðið er orðið málgagn Sjálfstæðisflokksins eins og Morgunblaðið. Aðeins Evrópuvænna málgagn og minna í afneitun eftir skýrsluna, en málgagn samt. Því sló blaðið upp bullfrétt um vinsældir Hönnu Birnu borgarstjóra.