Fresta má friðarsamningum

Punktar

Ferðaþjónusta verður á fullum dampi í sumar, einnig sjávarútvegur, ál og landbúnaður. Framkvæmdir eru sú grein, sem liggur niðri og veldur skorti á atvinnu. Við getum sætt okkur við það og leyft IceSave að damla áfram án afgreiðslu. Þá tökum við engin lán, af því bara að enginn vill lána okkur. Í landinu er fullt af fé í bönkunum, sem lána má til lítilla fyrirtækja og miðlungsfyrirtækja. Ef vextir væru þolanlegir. En stórverk verða að bíða. Stefna svo að friðarsamningi við útlönd að ári, þegar stórskuldir ríkisins byrja að falla. Líklega er þetta eina færa leiðin fyrir þjóð í afneitum.