Framsókn er hægri

Punktar

Höskuldur Þórhallsson segir réttilega Framsókn vera of nærri Flokknum. Fátt skilur milli, Framsókn fylgir Flokknum svona 90%. Og er að sumu leyti meira til hægri, einkum formaður með silfurskeið í munni. Undir forustu hans kemur Framsókn fyrir sem hægri upphlaupsflokkur með ódýrar patentlausnir á hverjum fingri. Flestir þingmennirnir eru á þeirri línu nema Eygló Harðardóttir, Siv Friðleifsdóttir og kannski Höskuldur sjálfur. Hægri hönd Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar frá Kögun er Vigdís Hauksdóttir. Hún er hvað eftir annað í fréttum vegna æsings á landsfrægu hrognamáli. Enda er fylgið á botninum.