Forkláraður dýrlingur

Punktar

Samkvæmt bloggi Björgólfs Thor á hann heima í dýrlingatölu, búinn að borga einkaskuldir og Actavis. Nokkuð brattur í sjálfshólinu. Ætla mætti, að hann hafi gert upp syndirnar í tengslum við Landsbankann og þar á ofan endurgreitt IceSave. Svo er ekki. Einkavinavæðing Landsbankans var að vísu mest á vegum Davíðs erkiengils. En Björgólfur Thor eignaðist bankann fyrir ekkert og hóf þar til valda verstu bankstera norðan Alpafjalla. Landsbankinn hefur lengi verið í slitameðferð og á lítið upp í annað en forgangskröfur vegna IceSave. Dýrlingurinn olli fólki varanlegu tjóni, þjóðin öll riðaði raunar til falls.