Flugslys hagfræðinganna

Punktar

Hér hefur orðið hræðilegt flugslys hugsaði ég, þegar ég fletti Mogganum í morgun. Ótal litlar myndir. Svo sá ég, að þetta voru allt hagfræðingar. Flugslys hagfræðinga. Þrjátíuogtveir slíkir sammála um eitt mál. Hlýtur að vera heimsins mesta samstaða. Þar eru meðal annarra heimsfrægir spámenn og friðflytjendur á borð við forstjóra greiningardeilda bankanna. Allir eru sammála um að vara við einhliða upptöku evru. Mál, sem mér þótti dálítið spennandi í haust, en var búinn að gleyma. Nú er ég aftur kominn með áhuga á einhliða evru. Þökk sé sameiginlegu flugslysi þrjátíuogtveggja hagfræðinga.