Flestir eru okkur andsnúnir

Punktar

Á hverjum degi finnast einhverjir útlendingar, sem hafa samúð með okkur. Í flestum tilvikum stafar það af, að þeir hafa ýktar hugmyndir um upphæðir í IceSave. Þær eru brúttótölur, áður en búið er að draga frá tekjur. Þetta samúðarfólk er einkum yzt á vinstra kanti stjórnmála og örlítið yzt á hægri kantinum. Meginþorri þeirra, sem hafa heyrt minnst á IceSave, eru okkur andsnúnir. Pólitíkusar, sem hyggjast ná árangri í kosningum á þessu ári, fara varla að flagga stuðningi við málstað Íslands. Þetta er þröskuldur í vegi skjótrar þriðju útgáfu af samkomulagi við stjórnir Bretlands og Hollands.