Erlendir fjölmiðlar fjalla um fjöruga framgöngu Japans og Íslands á þingi Hvalveiðiráðsins. Ennfremur fjalla þeir um, að ráðið hafi áminnt ríkin tvö um að fara ekki kringum hvalveiðibann undir yfirskini svokallaðra vísindaveiða. Nýstofnuð alþjóðasamtök hvalaskoðunarfyrirtækja mögnuðu fjörið með því að mæta á þingið og krefjast þess, að ráðið hafi 130 milljarða króna árlega hagsmuni hvalaskoðunar að leiðarljósi. Á þessum síðustu og verstu tímum vestrænnar samvinnu er andstaðan við hvalveiðar orðin eitt af fáu, sem sameinar heimsveldið Bandaríkin annars vegar og stórveldi Evrópu hins vegar. Stuðningsríki hvalveiða í ráðinu eru aftur á móti Antigua & Barbuda, Benin, Dominica, Gabon, Grenada, Guinea, Ísland, Japan, Mongólía, Noregur, Palau, Panama, St Kitts & Nevis, St Lucia, Senegal og Salómonseyjar. Nokkuð skrautlegt lið.
