Firring þjóðkirkjunnar

Punktar

Stofnanir borgarinnar banna að skikka börn til helgiathafna. Hér eftir munu forráðamenn barna ákveða slíkt. Gott mál, eykur jöfnuð í trúmálum og dregur úr ofstæki. Karl Sigurbjörnsson biskup og Þórhallur Heimisson prestur svara breytingunni samt með firringu og rangfærslum. Biskup líkir Reykjavíkurborg við Sovétríkin og leiðbeiningum borgarinnar við ofbeldi Stalíns. Minna má það víst ekki vera. Presturinn kallar þetta hatur í garð kristni. Á hvaða plánetu eru þessir karlar? Er þjóðkirkjan ekki enn byrjuð að læra af biturri reynslu síðustu ára? Biskupar geta ekki lengur terroríserað fórnardýr sín.