Þín verðmætasta eign er passinn þinn. Allt annað er verðlaust, húsið þitt, bíllinn og pappírarnir. Flýðu land, ef þú getur. Davíð & Co hafa gert þig gjaldþrota. Þú verður að borga milljónir króna fyrir Bjöggana. Sem betur fer vegna Evrópusambandsins geta Íslendingar fengið vinnu í Evrópu. Bezt er það á Norðurlöndum, því að velferð er þar bezt. Duglegir Íslendingar geta auðveldlega fengið vinnu. Finndu passann þinn, hringdu í vini eða ættingja á Norðurlöndum og biddu þá að forvitnast um vinnu og húsnæði. Strax. Betra er að hefja nýtt líf á núlli en þræla fyrir brennuvarga frjálshyggjunnar.
