Fín bleikja dags

Punktar

Bleikja dagsins var nákvæmlega rétt grilluð, einnig grænmetið. Of mikið var af kartöflum. Fiskinn þurfti ég að draga upp úr djúpri súpuskál. Í hádeginu var Nauthóll eins að gæðum og þeir, sem ég hef hæst prísað í bænum. Dýrari en meðaltalið, 2.400 krónur réttur dagsins. Að kvöldi er verð mun hærra og gæðin án efa þeim mun betri. Hér er Nauthólsvík og risavaxnir gluggar snúa að risavöxnu bílastæði. Hönnun húss er mjög í stíl 2007, allt skjannahvítt og línur láréttar út á spássíu. Allt einfalt, málverk í einum lit og mublur hornréttar. Rosalega kuldalegur staður, mundi fíla hann í hitabeltinu.