Borið hefur á skoðunum um, að gamlingjarnir, sem fæddust 1955 eða fyrr, eigi að greiða til hinna yngri. Gamla fólkið hafi ekki sætt verðbótum og hafi eignazt íbúð fyrir lítið. Slíkar aðstæður séu ekki hjá yngra fólki. Uppgjör milli kynslóða er þó miklu flóknara en þetta. Geta menn ekki frekar reynt að sýna fram á, frá hverjum hinn meinti gróði þeirra gömlu var tekinn? Hætt er við, að lítið verði um svör. Gamla fólkið hafði bara ekki aðgang að lánum til að sukka með. Varð að eiga fé til að byggja, varð að eiga fyrir bíl. Þar er mesti munurinn á fortíð og nútíð. Unga fólkið vandist á að sukka með fé.
