Fáum nýjar tölur á borðið

Punktar

Ég vil fá að vita, hvaða stórfyrirtæki og hagsmunasamtök borga baráttuna í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Ekki er nóg að fá að vita eftir kosningar eða jafnvel eftir ár. Við þurfum að fá að vita núna, hverjir eru húsbændur þessa liðs. Núna. Samkvæmt reynslunni er auðmagnið að baki frambjóðendanna, sem mest ber á. Hrunflokkurinn hefur ekkert lært af reynslunni. Og meining hans er, að við megum ekki heldur. Við vitum, að hrunflokkurinn þjónustaði gamla IceSave Landsbankann með einkavinavæddu borgarskipulagi, fékk ríflega þóknun fyrir. Hálfar og heilar milljónir. Fáum nýju tölurnar á borðið.