Fáfróður hefur skoðanir

Punktar

“Ég heyrði ekki viðtal Sverris við Guðna Ágústsson”, segir í bloggi Bjarna Harðarsonar alþingismanns. Samt hefur hann harðar skoðanir á einstökum smáatriðum viðtalsins og frammistöðu Sverris Stormskers. Ekki er nýtt, að þingmenn vaði á súðum án nokkurs tillits til staðreynda. En Bjarni skarar fram úr öðrum á þessu sviði. Hann hrósar sér í senn af að hafa ekki hugmynd um staðreyndir málsins. Og ræðir síðan þessar staðreyndir eins og hann hafi kynnt sér þær til hlítar. Forsenda alls málflutnings er að kynna sér sumar staðreyndir. En Bjarni hófst til virðingar í pólitík á að hafna forsendum.