Éta það sem úti frýs

Punktar

Upp til hópa eruð þið aumingjar, sem hafið ekkert lært af reynslunni. Í fyrra flykktust þið tugþúsundum saman á kjörstað til að koma hrunverjum aftur til valda. Voruð síðan verðlaunaðir með því að skera niður velferð og heilsu til að rýma fyrir kvótagreifum. Enn er þriðjungur ykkar svo veikur af Stokkhólms-heilkenninu, að þið styðjið stjórnarflokkana í skoðanakönnunum. Markvisst er unnið að því að brjóta niður innviði samfélags siðaðra og koma þjóðinni inn í frumskóg stéttaskiptingar. Skiljanlegt er, að efstu þrjú prósentin styðji græðgina. Þið hin eruð bara vesalmenni, sem eru látin éta það, sem úti frýs.