Af hverju fóru verðir laganna ekki inn í SP fjármögnun í nótt? Hvers vegna var bókhald SP-fjármögnunar ekki gert upptækt, handskrifað eftir atvikum? Af hverju eru yfirmenn SÞ fjármögnunar ekki í gæzluvarðhaldi? Samkvæmt fréttum sjónvarps í gær er brotavilji þeirra eindreginn. Hvers vegna réði Ásmundur Stefánsson bankastjóri þetta lið í dótturfyrirtæki ríkisbankans? Af hverju gerði Samfylkingin Ásmund Stefánsson að bankastjóra? Af hverju hótar Gylfi Magnússon bankaráðherra að setja byrðar glæpabanka á herðar skattgreiðenda? Af hverju förum við ekki í SP, veltum þar um borðum og rekum víxlarana út?
