Ríkisstjórnir án þingmeirihluta halda velli með því að semja við flokka eða þingmenn utan meirihlutans um afgreiðslu. Þannig stendur ríkisstjórn Íslands velli með samningum við Ögmund Jónasson og samferðafólk hans. Þannig náðist umsókn um aðild að Evrópusambandinu og um ábyrgð á IceSave samningi. Þannig kann að nást breytt ábyrgð á breyttum IceSave samningi. Næst ekki með að ræða við stjórnarandstöðuna, hún er á móti öllu. Ögmundi tókst ekki í fyrra skiptið að draga andstöðuna með í ferðina. Tókst ekki þá og mun ekki takast nú. Því talar ríkisstjórnin ekki við stjórnarandstöðuna, bara við Ögmund.
