Eitruð blanda íslenzk

Punktar

Í dag hef ég talað nokkrum sinnum um afneitun og meðvirkni Íslendinga. Hvort sem þeir tala um skriðtæklingu í fótbolta, mútur til pólitíkusa eða nýjar siðareglur blaðamannafélagsins. Hástig afneitunarinnar var þjóðaratkvæðið um IceSave. Þessir tveir brestir í hugarfari fara saman við þjóðrembuna. Hún kom vel fram, þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði útlendan hagfræðing þurfa að fara í endurmenntun. Hann hafði sagt, að Ísland væri að sigla inn í fjármálahrun. Íslendingar töldu sig hins vegar vera heimsins klárasta fólk. Afneitun, meðvirkni, þjóðremba: Þetta þrennt saman verður eitruð blanda.