Eins og flís við rass

Punktar

Bjarni Benediktsson missti minnið út af Vafningi. Þykist ekki vita neitt um alvarlegar afleiðingar af gjaldfalli láns Morgan Stanley til Glitnis. Samt fór hann beint eftir undirskriftina og seldi öll bréf sín í Glitni fyrir 126 milljónir króna. “Ég hef ekkert að fela”, segir hann nú að morgni dags. Að kvöldi segir hann: “Veistu, ég er nú ekki mættur hingað í einhverja opinbera yfirheyrslu, er það?” Mánuðum saman hefur aðild Bjarna að Vafningi, Sjóvá og Glitni verið til umræðu, án þess að neitt hafi verið útskýrt. Nema það, að formaðurinn fellur eins og flís við rass stóra bófaflokksins í pólitíkinni.