Eins flokks ríki

Punktar

Paul Krugman segir í New York Times, að Bandaríkin séu orðin að eins flokks ríki eins og Mexikó var áratugum saman. Flokkur repúblikana gætir hagsmuna stórfyrirtækja og hlýtur að launum þorra kosningafjárins. Með peningalegum yfirburðum er kostuð kosningabarátta, sem nær fullkomnum árangri, af því að bandarískir kjósendur eru eins og þeir eru.