Einfaldir skattar

Punktar

Skattar eiga að vera einfaldir og þeir eiga ekki að vera tekjujöfnun. Alls konar aðrar leiðir eru til tekjujöfnunar, svo sem barnabætur, örorkubætur, ellistyrkur og frí þjónusta á borð við spítala, skóla og leikskóla. Stig tekjuskatts á að vera eitt. Tekjuskattur á laun og fjármagn á að vera hinn sami. Vaskur á að vera einn á allar vörur og þjónustu, líka matarskattur. Vask á að leggja á allar innfluttar vörur og á farseðla til og frá landinu. Hafa má til marks um lítinn kjark pólitíkusa, að þeir hafa ekki komið svona einföldun í verk.