Þeir, sem svifta sig lífi af fjárhagsáhyggjum, gera það á eigin ábyrgð, en ekki annarra. Deyi þeir frá skuldum á ábyrgð vina, ættingja eða tengdafólks, valda þeir þessu fólki vandræðum til viðbótar. Að svipta sig lífi er víðtæk ákvörðun, sem kristin kirkja hefur ætíð verið andvíg. Því eru sjálfsvíg enn feimnismál í samfélagi fólks í Vestur-Evrópu. Vandamálin, sem stuðla að hugarfari sjálfvíga skána ekki, þótt menn beini geiri að þeim, sem innheimta skuldir. Eða að þeim, sem höfðu afskipti af viðkomandi manni. Enda mistókst tilraun til að æsa málið upp. Bloggarar bitu að þessu sinni ekki á agnið.
