Ég er rasisti

Punktar

Líklega telst ég rasisti samkvæmt nýjum skilgreiningum. Er andvígur íslam sem trúarbrögðum. Að vísu andvígur trúarbrögðum yfirleitt og hvers kyns bókstaf guðsorðamanna. Er þó orðinn sáttur við þá kristni, sem hjarir á jaðri hinna veraldlegu samfélaga í Evrópu. Íslam er öðruvísi sem karlrembd eingyðistrú úr eyðimörkinni. Hefur aldrei komizt út úr myrkum miðöldum, þar sem konur og börn teljast vera milli manna og geita. Íslam slípaðist ekki af þekkingarbyltingu og franskri alþýðubyltingu. Ríki íslams undirrita ekki mannréttindaskrá Sameinuðu þjóðanna. Væri ekki fyrir olíufé, væri heimur íslams samfelld auðn Afganistans. Þar sem ég hef ávallt lýst andstöðu við hernað Vesturlanda í heimi íslams, þar á meðal stríðsglæpi Davíðs Oddssonar, tek ég enga ábyrgð á þeim ljóta hernaði.