Dularfull sinnaskipti

Punktar

Ósvarað er spurningunni um, hvað var gallað við sniðgöngu borgarinnar á vörum Ísraels og hvers vegna. Hvorki Dagur B. Eggertsson né Halldór Auðar Svansson hafa gefið sannfærandi skýringar. Varla hefur það verið munurinn á Ísrael og hernumdu svæðunum. Enn síður lygasögur um tjón í vatnssölu, flugfarseðlum og holunni við Hörpu. Í miðju kafi urðu Dagur og Halldór skelfingu lostnir og hlupust frá öllu saman. Án þess að skýra frá á sannfærandi hátt, hvers vegna ekki mátti laga tillöguna í snarheitum. Hvaða lagatæknir ruglaði þá ríminu. Ekki mundi ég vilja setja traust mitt á slíka ringulreiðmenn. Eitthvað leyndó gerðist, sem enn hefur ekki komið fram.