Dómstóll götunnar virkar

Punktar

Að svo miklu leyti sem dómstólar þjóna ekki réttlæti tekur dómstóll götunnar við. Íslenzkir dómstólar þjóna því miður ekki réttlæti, heldur lagatækni. Réttlæti er alls ekki til sem hugtak hjá lagatæknum frá Háskóla Íslands. Ég mundi aldrei leita réttlætis hjá íslenzkum dómstólum, en mundi þó leita þess í Strassborg eða Bruxelles. Vegna þessa sérkennis fæst hér sjaldan réttlæti í kynferðisbrotamálum. Ekki einu sinni, þegar orð sjö kvenna eru gegn orði eins kristilegs káfara. Dómstóll götunnar virkar bara ágætlega. Og mun áfram virka, unz Brynjar Níelsson og aðrir lagatæknar lagfæra hefðbundna dómstóla.