Diplómatar úreldast

Punktar

Sendiráð og konsúlöt eru víða til þæginda fyrir íslenzka ferðamenn, en síður gagnleg til viðskipta. Nú orðið koma menn á samböndum beint, án milligöngu sendiráða. Samt þarf sendiráð á nokkra brýna staði vegna fjölþjóðasamvinnu. Bruxelles er þar efst á blaði. En engin þörf er á þeim mikla kostnaði, sem fylgir ofurflottum sendiherrabústöðum. Né í hringdansi erlendra sendiherra í hefðbundnum menúett diplómatíunnar. Fámenn þjóð getur neitað að taka þátt í tilgangslausum formsatriðum og sjónhverfingum. Gott er að muna, að trylltur Davíð Oddsson skipaði ellefu sendiherra á aðeins tæpu ári sem utanríkis.