Deilan um Evrópuaðild

Punktar

Gagnleg eru skoðanaskipti álitsgjafanna Egils Helgasonar og Teits Atlasonar um Ísland og Evrópusambandið. Sjálfur hallast ég frekar að skoðunum Teits, enda sannfærður Evrópusinni að upplagi. Hef samt vaxandi efasemdir um ferli umsóknarinnar. Röksemdir mínar eru aðrar en Egils. Tel, að margt sé gagnlegt við umsóknina og að atkvæðagreiðsla um samning væri prófsteinn á þjóðina. Sé hina vegar, hvernig málið hefur frá upphafi eitrað samstarf um ríkisstjórn. Hefur kvarnað úr þingliði Vinstri grænna og þannig hindrað framgang góðra mála. Skertur meirihluti á Alþingi stafar af einstrengingi aðildarsinna.