Davíð forðað undan Sérstökum

Punktar

Þingmannanefndin um sannleiksskýrsluna hefur unnið ógnarhægt undir forsæti Atla Gíslasonar. Hittist aðeins tvisvar í viku. Vegir hennar eru einnig órannsakanlegir. Hefur vísað máli Davíðs Oddssonar, annarra seðlabankastjóra og Jónasar. Fr. Jónssonar til ríkissaksóknara. Ekki til sérstaks saksóknara, sem á þó að fjalla um öll mál, sem varða hrunið. Mál Davíðs og félaga snýst um meinta vanrækslu í hruninu og á því að fara til Sérstaks. Gamla embættið er hins vegar óhæft til allra verka, sem varða fjárglæfra. Fyrri dæmi sanna það. Gott væri, að fjölmiðlar spyrðu nefndina um ástæðu hins undarlega vals.