Burt með blautar tuskur

Punktar

Fullreynt er með Sigmund Davíð og Bjarna Ben á einu ári. Skoðanakönnun segir, að almenningur treysti þeim ekki. Eru ekki taldir vera neinir leiðtogar. Hafi engan sjarma, ekki lengur neinn kjörþokka. Taldir vera óheiðarlegir, svíkja sannfæringu sína og vera úr tengslum við almenning. Taldir vera óákveðnir og veikir foringjar, sem vinni illa undir álagi. Allt þetta sögðu hinir spurðu í könnuninni. Þeir félagar hafa étið upp kvótann sinn og eru léttvægir fundnir. Byrði á flokkum sínum, annar horfir á sinn flokk klofna og hinn á sinn flokk veslast upp. Burt með þessar blautu tuskur, þær flækjast fyrir framtíðinni.