Brjóta niður siðferði

Punktar

Kerfiskarlarnir eru vinir bófanna og óvinir þjóðarinnar. Ríkisendurskoðandi vill gefa fyrrum forstjóra Eirar tækifæri til að endurgreiða sólarlandaferð, sem hann stal af gamla fólkinu. Ég hélt það væri glæpur. Fangelsismálastjóri hýsir þá fyrstu dæmdu úr hruninu í lúxushúsi með sánu á Kvíabryggju. Fólkið í landinu býr almennt ekki við sánu; eiga bófar alls staðar að hafa forgang? Bankastjórar afskrifa tugi milljarða hjá fasteignabófa, sem á sama tíma eru að byggja sér 500 fermetra einbýlishús. Á alveg að brjóta niður siðferði í landinu? Hversslags rugl eru þessar afskriftir, eingöngu fyrir ofurbófa?