Brezka embættiskerfið ákvað á laugardaginn að gerast sáttfúsari í IceSave. Menn töldu gott að reyna að hindra þjóðaratkvæðagreiðslu á Íslandi. Töldu hættu á fordæmi. Skattgreiðendur í öðrum löndum færu kannski að efast um ábyrgð sína á bankaruglinu. Slíkt er óbærileg tilhugsun ráðamanna í heimi ríkisfjármála. Leiðarinn í Financial Times á föstudaginn kom líka illa við þá. Þar er brezka ríkisstjórnin hundskömmuð fyrir framgöngu sína í IceSave. Brezkum ráðamönnum fannst súrt að heyra slíkt úr þeirri átt, úr blaði fjármálaheimsins. Því hefur opnast færi á að leysa þessa leiðu deilu.
