Blaðamenn í felum

Fjölmiðlun

Blaðamenn geta lítið fylgzt með framvindu stríðsins gegn írak. Annað hvort eru þeir í för með bandaríska hernum og sjá ekkert annað. Eða að þeir eru á brynvörðum hótelum og hætta sér ekki annað en á fullri ferð inn á græna svæðið, þar sem bandaríska landstjórnin stýrir. Annars staðar eru blaðamenn bara drepnir, ef þeir stanza meira en klukkutíma. Sextíu blaðamenn hafa verið drepnir í stríðinu, þar af fimm teknir af lífi. Af þessari ástæðu er ekki auðvelt að heyra sannar fréttir frá Írak. Þessi frétt ein sýnir þó, að ástandið er afleitt.