Björgvin fyrirgefur þjóðinni

Punktar

Björgvin G. Sigurðsson segist ekki erfa neitt við neinn. Hefur fyrirgefið þjóðinni. Kræfur, karlinn. Ingibjörg Sólrún hefur ekki fyrirgefið neinum, rífur enn kjaft í einstæðum hroka. Sá eini, sem gerir upp sín mál, er Geir H. Haarde. Að vísu tilneyddur. Hann fer fyrir Landsdóm, fær litla sekt og afgreiðir þannig sín mál. Eins og Árni Johnsen. Ingibjörg Sólrún og Björgvin afgreiða hins vegar aldrei sín mál. Né heldur Samfylkingin, sem sá um, að þau færu ekki fyrir Landsdóm. Þjóðin mun því um aldur og ævi eiga óuppgerðar sakir við þau tvö og flokk þeirra. Sem reyndist fyrir rest vera hrunflokkur.