DV hefur upplýst í mörgum fréttum, að formaður hrunflokksins er viðriðinn milljarðabrask með Sjóvá. Gaf sjálfum sér umboð í BNT til að veðsetja hlutabréf í Vafningi, sem tengist Tortola. Blaðið birtir í dag myndir af skjölum, sem sýna, að Bjarni Benediktsson hefur logið um afskiptaleysi sitt. Málið er hluti af stóra svindlinu, þegar bótasjóði Sjóvá var stolið. Ríkið hljóp undir bagga með milljörðum frá skattgreiðendum. Aðrir fjölmiðlar hafa ekki tekið á þessu. Nema Eyjan.is. Sýnir eymd fjölmiðlunar hér. Í öðrum vestrænum löndum væri Bjarni búinn að láta af formennsku og þingmennsku.
