Bítur sig fasta

Punktar

Eins og aðrir afturkallar ríkisstjórnarinnar á Ragnheiður Elín Árnadóttir erfitt með að sjá út fyrir boxið. Beit sig fasta í umdeildan náttúrupassa með lögreglueftirliti. Neitar að skoða ýmsa möguleika, sem reynt er að benda henni á. Áður hafði hún tekið þátt í að skera niður vask á ferðaþjónustu. Þar tapast margfalt meira fé en hún nær til baka með náttúrupassa með lögreglueftirliti. Þótt aðeins væri tekinn kvartmilljarður af fénu í þessum hluta vasksins, væri það nóg til að reka alla ferðastaði. En Ragnheiður Elín getur ekki hugsað nýja hugsun. Bítur sig ætíð fasta, svo sem í álver og lögreglueftirlit með náttúrupassa. Rakið mál verður að fávitahætti.