Bíður eftir sukkara

Punktar

Mér varð illt, þegar ég las, að Ólafur Haukur Johnson bíður bara eftir nýjum menntaráðherra til að endurræsa Hraðbrautina. Segir þolandi, að sá verði úr Samfylkingunni. Á tíma sukks Þorgerðar Katrínar var Ólafur sérfræðingur í að misnota pólitísk sambönd. Stal af ríkinu tugum milljóna króna umfram samning skólans. Flokkurinn hefur verið úti í kuldanum í þrjú ár og galdramaðurinn þarf að þreyja þorrann. En er ekki búinn að gefast upp. Telur sína eigin sukkara munu komast senn til valda og þá geti ruglið byrjað að nýju. Ólafur Haukur er eitt grófasta dæmið um ógeðfelldan pilsfaldakapítalisma Flokksins.