Ekki er sopið kálið, þótt í ausuna sé komið. Hæstiréttur á eftir að segja síðasta orðið. Samt er mikilvægt, að héraðsdómur skuli telja myntkörfulán ólögmætt. Dómstólar dæma yfirleitt kerfinu í hag til að raska ekki ró þess. Dómurinn um ólögmæti myntkörfuláns er alger undantekning, sem ber að fagna. Kerfið mun vafalaust vísa málinu áfram til Hæstaréttar. Þar eru við völd ýmsir furðufuglar Björns Bjarnasonar, ekki síður en í héraðsdómi. Ég mundi ekki draga tappann úr kampavínsflöskunni fyrr en myrka véfréttin á Arnarhóli hefur talað. Ég treysti ekki dómurum landsins betur en bankastjórum þess.
