Berst um á hæl og hnakka

Punktar

Hvar sem Hanna Birna rekur niður hóf, þar vex aldrei gras. Fyrst kenndi hún Rauða krossinum um lekann. Sagði síðan lögguna vinna of hægt, þegar sú var bara að vanda sig. Rústaði lögreglustjóranum í Reykjavík, sem sagði af sér við ofríki ráðherrans. Rústaði virðingu ráðuneytisstjórans, þegar uppvíst var um faktúrufölsunarfélagið við Sölvhólsgötu. Uppgötvaði víðtækt samsæri gegn sér, sem fléttast um allt þjóðfélagið. Þar eru auðvitað illir blaðamenn, en líka umbi alþingis, svo og vondir prófessorar og ríkissaksóknarar, núverandi og fyrrverandi. Bjarni Ben þarf að koma ráðherranum á þar til bæra stofnun.