Auglýsingar já-sinna og nei-sinna eru góðar í Fréttablaðinu í dag. Þær eru eins og auglýsing já-sinna í sama blaði í gær. Gefa stuttaralega innsýn í helztu áherzlur hinna ólíku sjónarmiða. Engar röksemdir eru í auglýsingunum, en þær koma fram á öðrum vettvangi. Þetta er allt annað líf en auglýsingar um mannætuhákarl og barnaþrældóm í brezkum kolanámum. Blogg og fésbók eru full af fasistarugli að hætti Egils Ólafssonar, en slíkt passar ekki í auglýsingum. Vonandi verður endasprettur baráttunnar á þessum breyttu nótum, í röksemdum og staðhæfingum, fremur en í gælum við frumstæðar hvatir fólks.