Barnið lýgur ævinlega

Punktar

Man enn eftir nýsköpunarstjórn Ólafs Thors og man vel eftir helmingaskiptum Steingríms Steinþórssonar og Ólafs Thors. Man vel eftir tengslum stjórnmála við hagsmuni sjávargreifa og helmingaskiptum spilltu flokkanna, sem eru hér við völd. Ekki man ég þó eftir neinum forsætis, sem laug eins þindarlaust og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Hann er eins og barn, sem lifir í eigin heimi. Þar sem hann er Kafteinn ofurbrók, er berst við útlenda hrægamma og galdrar hundruð milljarða upp úr hatti. Mikið mega þeir kjósendur vera trúgjarnir, sem hófu lygið barn til metorða. Þú getur treyst, að barnið lýgur ævinlega.