Bara fattar ekki

Punktar

Hvar eru þúsund milljarðarnir sem kafteinninn sagðist sækja til Noregs? Hvar er dollarinn, sem hann sagðist finna í Kanada? Hvar eru 300 milljarðarnir, sem hann sagðist hirða af hrægömmum? Hvar er 20% afskrift skulda heimila, er hann sagðist redda? Hvar er heimsmetið, sem hann sagðist setja í róttækni? Hvernig sleit Evrópusambandið viðræðum við skipstjórann? Hvar skauzt upprisa millistéttarinnar úr töfrasprota hans? Hvernig býr kafteinn vor á eyðibýli í Jökulsárhlíð? Hvað stendur í byrjaðri doktorsritgerð hins mikla frelsara? Hvers vegna fattar rugluð þjóð ekki, hver sjálfumglaði loddarinn er í raun?