Bankar elska braskara

Punktar

Ofurbraskararnir, sem settu Ísland á hausinn, reka enn fyrirtæki sín og nú á vegum ríkisbankanna. Exista er frægasta dæmið. Stríðir gegn siðferðisvitund þjóðarinnar, en ríkisstjórnin hefur samt ekki rekið bankastjórana. Þar með tekur hún sjálf ábyrgð á siðleysi þeirra. Þar með svíkur hún upprunalegt loforð sitt um að velta við hverjum steini. Þess vegna harðneitar þjóðin að greiða krónu í IceSave og annan hreinsunarkostnað. Spyr til dæmis, hvers vegna gjaldþrota ofurbraskarar í stétt útvegsmanna fái enn að reka fyrirtæki á vegum Landsbankans. Til dæmis tengdasynir Soffaníasar í Grundarfirði.