Bak við sig

Punktar

“Brynjar kastar öllum mínum syndum bak við sig, bak við sig, bak við sig. Hann frelsaði mig …” Þannig syngja sanntrúaðir Flokksmenn í dag. Hafa fengið Fjallræðuna frá Brynjari Níelssyni þingmannsefni. Vill, að bankahrunsmálin séu ekki rannsökuð sem sakamál. Rannsóknin ein sé verri en Kvíabryggjuvist, segir hinni nýi spámaður. Hann er kominn til að kasta öllum útrásarsyndum okkar bak við sig. Allt frá Vafningi yfir í forsætisráðuneyti Geirs. Meinta hrunið fólst bara í þessari venjulegu bankastreitu, sem varla telst vera kreppa. Afneitun hrunverja minnkar lítt við innreið Brynjars í musterið.