Ég hef takmarkað álit á þjóðinni. Hún heldur, að skrautlegir greifar séu frelsarar. Hélt að Davíð hefði komið af himnum ofan. Hún kaus yfir okkur þá, sem settu okkur á hausinn. Hélt áfram að kjósa sömu gerpin kosningar eftir kosningar. Ætlar að halda því áfram í næstu kosningum, samkvæmt könnunum. Dregur lífið fram milli kosninga á afneitun, þjóðrembu og vænisýki. Afneitar aðild sinni að bankahruninu. Tugþúsundum saman hvetja menn forsetann til að hafna staðfestingu Alþingis á IceSave. Menn voru öldum saman innræktaðir í einangrun, taka enga ábyrgð á afleiðingum gerða sinna. Aumingjar í afneitun.
