Um daginn voru kjósendur spurðir um skattahækkanir. 70% svarenda telja þær hafa verið rangar, samkvæmt skoðanakönnun. Kjósendur eru auðvitað algerir bjöllusauðir. Hugsið ykkur, hvernig ástandið væri, ef þeir væru alltaf látnir ráða. Til dæmis í þjóðaratkvæði. Þeir mundu setja landið á hausinn á örskömmum tíma. Sjáið bara Kaliforníu, þar sem þjóðaratkvæði er um skatta. Kalifornía er að fara á hausinn. Ástandið þar er margfalt verra en á Íslandi og í Grikklandi. Í Kaliforníu vill auðvitað enginn borga skatta og fær að ráða. Fulltrúalýðræði er mun illskárra en beint lýðræði. Það sanna dæmin.
